Gengið í snjó að saunatjaldi í skógi

Sauna sem þú tekur með þér

Færanleg sauna frá Bast: uppsett á um 10 mínútum, án framkvæmda og án rafmagns. Nýju pakkarnir með Malm-ofninum eru komnir í forpöntun og koma 14. nóvember.

Stam fyrir 16–20 manns fæst í sérpöntun.

Skoða saunatjöldin

Nýtt frá Bast

Forpöntun · kemur 14. nóvember

Malm – mýkri gufa og jafnari hiti

Nýi viðarofninn frá Bast fyrir Näver og Björk. Steinakarfa umlykur ofninn, heldur vel í hitann og dregur úr beinum geislunarhita.

  • 2,5 mm þykkt stál – um 39% þykkara en í fyrri ofni
  • Tvöfaldur bruni nýtir eldiviðinn betur
  • Steinakarfa sem rúmar 40–60 kg af saunasteinum
  • Upphitun frá um 20 mínútum samkvæmt Bast; tími fer eftir aðstæðum
Stam Premium saunatjald með Malm XL ofni, bekkjum og aukahlutum
Sérpöntun

Stam – fyrir 16–20 manns

  • Stærsta saunatjald Bast, með Malm XL ofni
  • Fyrir vinnustaði, starfsmannafélög og viðburði
  • Pantað sérstaklega frá Bast fyrir þig
  • Plus og Premium – verð frá 429.900 kr.
Saunatjald með gluggum við vatn í kvöldsól

Hvað er saunatjald?

Saunatjald veitir sömu upplifun og hefðbundin sauna — án þess að þurfa að byggja, sækja um leyfi eða festa sig við einn stað. Þú setur hana upp þar sem þú vilt og nýtur alvöru saunu, hvenær sem er. Njóttu hennar á pallinum eða í garðinum allt árið um kring. Taktu hana með í bústaðinn, útileguna eða ferðalagið. Tilvalin í veiðiferðina eða næsta hitting.

Kona situr á bekk inni í saunatjaldi við viðarofn

KOSTIR SAUNU

Í finnskri rannsókn á 2.315 körlum var tíð saunanotkun (4–7 sinnum í viku) tengd um 40% lægri heildardánartíðni og um 50% færri dauðsföllum af völdum hjarta- og æðasjúkdóma en saunanotkun einu sinni í viku. Þetta eru athugunarrannsóknir sem sýna tengsl, ekki orsök. Margir finna líka fyrir slökun og betri svefni eftir saunu.

Kostir saunu
Stofnendur Bast Sauna inni í saunatjaldi

Uppruninn

Bast Sauna á rætur sínar að rekja til þriggja vina í norðurhluta Svíþjóðar sem deildu sameiginlegri ástríðu fyrir saunumenningu, útivist og einföldum en vönduðum lausnum. Þeir ólust upp við að saunan væri sjálfsagður hluti af daglegu lífi — staður til að hlýja sér, jafna sig og eiga gæðastund, óháð veðri eða árstíma.

Hugmyndin að Bast Sauna kviknaði þegar þeir sáu hversu margir vildu njóta saunu en stæðu frammi fyrir sömu hindrunum: skorti á plássi, leyfum, tíma eða fjármagni til að byggja hefðbundna sauna. Lausnin varð sú að skapa færanlega saunu sem skilar raunverulegri saunaupplifun, án þess að gefa afslátt af gæðum.

Heimasíða Bast

Strompur saunatjalds við vatn í sólsetri

Saunatjöld þróuð af reynslu og þekkingu

Þremenningarnir hjá Bast leggja ríka áherslu á að varan standist strangar kröfur um hita, endingu og notagildi. Í þróunarferlinu var unnið í samstarfi við Tækniháskólann í Luleå, þar sem áhersla var lögð á hitanýtingu, loftflæði og efnisval. Markmiðið var einfalt en metnaðarfullt: að saunatjaldið veitti sömu upplifun og hefðbundin sauna — jafnvel við erfiðar aðstæður.

Útkoman er Bast Sauna: saunatjald sem er fljótlegt í uppsetningu, nær mjög háum hita og er hannað til að standast norrænt veðurfar.

Vatni hellt úr ausu í saunafötu

Bast Sauna á Íslandi

Við erum stolt af því að bjóða Bast Sauna á Íslandi og sjá um sölu á saunatjöldum þeirra hér á landi. Við deilum sömu sýn og stofnendurnir: að gera saunur aðgengilegar, einfaldar og hluta af virkum lífsstíl.

Einnig erum við með fjölda aukahluta fyrir saununa sem gera upplifunina enn betri.

Saunatjöldin henta einstaklega vel íslenskum aðstæðum — hvort sem þau eru notuð í garðinum, við sumarbústaðinn, á ferðalagi eða í tengslum við íþróttir og útivist. Engin byggingarleyfi, engar framkvæmdir, bara sauna þá og þar sem þér hentar.

Um okkur

Algengar spurningar um saunatjöld

Saunatjöld frá Bast eru alvöru útisauna sem þú setur upp í garðinum, á pallinum eða í sumarbústöðunum, án framkvæmda. Hér eru svör við því sem flestir spyrja um áður en þeir kaupa.

Hvað er saunatjald?

Saunatjald er færanleg útisauna: einangrað tjald með viðarofni sem hitar tjaldið upp í saunahita. Þú setur það upp í garðinum, á pallinum eða við sumarbústaðinn á um 10 mínútum og tekur það með þér hvert sem er.

Þarf byggingarleyfi fyrir saunatjald?

Saunatjaldið er færanlegt og ekki varanlegt mannvirki. Það þarf hvorki rafmagn né framkvæmdir og í flestum tilvikum ekki byggingarleyfi. Kannaðu reglur sveitarfélagsins ef þú ætlar að láta það standa lengi á sömu stað.

Hversu lengi er saunan að hitna?

Um 20 mínútur í Näver og um 25 mínútur í Björk með Malm-ofninum, frá því að kveikt er upp. Uppsetning tekur um 10 mínútur.

Hvaða saunatjald hentar mér?

Löv er létt ferðasauna fyrir 2–4 manns, Näver hentar 4–6 manns í garðinn og á pallinn, Björk tekur 6–10 manns og Stam 16–20 manns (sérpöntun). Berðu tjöldin saman.

Má saunatjaldið standa úti allt árið?

Já, tjöldin eru hannað fyrir norrænt veðurfar og má standa úti allt árið. Í miklum vindi eða óveðri mælum við með að taka tjaldið niður.

Fæ ég saunatjaldið sent?

Já. Þú getur sótt það á Hraunhellu 3 á Selfossi eða fengið það sent með Póstinum.

Hvað er forpöntun?

Nýju pakkarnir með Malm-ofninum eru pantaðir frá Bast. Þú forpantar á netinu og við afgreiðum þá þegar þeir koma til okkar. Pakkarnir koma 14. nóvember.

Get ég dreift greiðslum?

Já, hægt er að dreifa greiðslum með Netgíró. Þú velur Netgíró í greiðsluferlinu.